Mitt líf

Margur heldur sig mig

08.02.2008 21:56:49 / bylgjan

veðurtepptar

ég og Þórdís erum veðurtepptar á Gegnishólum þar sem Óli er í verknámi, ætluðum að kíkja rétt í heimsókn, en það er svo mikil hálka og rok að við fukum bara útaf, svo eru svo miklar eldingar að þetta er eins og gamlársdag - ekki vera með andlitið að rúðunum, þær gætu bráðnað við andlitið á ykkur !! Óli og Bergur fóru út að draga bílinn upp, búnir að setja keðjurnar á og alles

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 15:46:07 / bylgjan

pöppís

 

já ég veit Fanney ég blogga sjaldan en ég er ekki með net í sveitinni - en það er víst á leiðinni. En annars er ég búin að detta af einu verknámstryppinu mínu, hún stakk sér sonna svaðalega allt í einu inn í reiðhöll, Þórdís var að ríða á undan mér, svo leit hún við og hún bara sá allar lappir á Blesu upp í lofti og allar lappir á mér upp í loft og svo fór ég upp í loft og í konnís og lenti eins og sirkusstjarna :haha: Svo er hún Iða mín búin að eignast 6 hvolpa, 3 tíkur og 3 hunda svo ef ykkur vantar hreinræktaða border collie þá eru 4 eftir - ein tík og 3 hundar, þeir eru ógó mikil krútt. 

 

En hvenær eigum við að halda sunnan hitting og fara á skemmtilegt ball ??


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 13:12:56 / bylgjan

tryppalingar

 

jæja verknámið er byrjað, er byrjuð á tryppunum og þau eru að verða alveg yndisleg og góð :haha:  er voða ánægð með þau. þau voru tekin út í dag af hólakennaranum og fengu bara jákvæða dóma, þessi tryppi eru:

    Thelma frá Auðsholtshjáleigu, undan Leikni Vakurst. og Trú auðs.

    Sylgja frá Auðsholts. undan Sveini Hervari og Glettu frá Grænhól

    Sátt f Auðsholts. undan Orra og Spurningu frá Kirkjubæ

    Önn fr Auðs undan Sveini Hervari og Ör

    og svo hann graddinn, hann Mörður frá Hallkelsstöðium, en við Þórdís köllum hann Braga okkur finnst Mörður svo ljótt nafn á graðhesti :$og hann er undan Orra 

 Annars er allt bara byrjað á fullu, byrja að ríða út og gefa og allles alltaf nóg að gera við sópa

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 17:28:35 / bylgjan

hamingju ár

jæja er ekki best að henda inn einni færslu sonna rétt áður en 2007 rennur út. Þetta er nottlega búið að vera æðislegt ár, gott veður og sonna :) Síðustu daga eftir að við lukum haustönn frá Hólum þá erum við Óli bara búin að vera að bardúsast í hestum, erum byrjuð að eiga við tryppin sem við fáum í verknáminu, rúntum hellisheiðina í góða veðrinu. Þar sem ég verð er komin rosa flott aðstaða, reiðhöll sem samtengd hesthúsinu svo ég þarf aldrei að fara út meðan óli þarf að hýrast úti, hihihihi. Ég verð nokkuð föl í vor þegar ég kem út, get bara riðið bauga og hliðagang :)

en ég bið að heilsa ykkur öllum, gleðileg hátíð og farsælt komandi ár og vonandi verður 2008 betra blogg ár hjá mér

 lifið heil og ekki skjóta rakettum í augun á ykkur

Bylgja 


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 19:26:07 / bylgjan

marin og blá

sæl verið þið mínir bloggsveltu vinir8) margt er búið að ske síðan ég ritaði eitthvað hér niður. Ég er búin að faraí körfubolta og fá mikla hasssperrur, ég er búin að fara í fótbolta - bara núna í vikunni, það var svaka gaman. 1 árið og 2 árið á hestabraut fór saman. við vorum um 25 og fyrst vorum við inná öll saman og það voru allir fyrir öllum. En svo var skipt í 3 lið og ég fékk að velja, jei valdi audda Óla minn fyrst - mitt lið var aðalega stelpulið, vorum 6 stelpur og 3 strákar. Það snérist mest bara um tímvörk - vorum ekki stigahæst en hvað með það :haha:En ég afrekaði það að fá bolta í hausinn, ekki viljandi, í brjóstið, rassinn og svo var það einn guttinn sem sparkaði svo fast að hann dúndraði boltanum í lærið og ég er með huges marblett á lærinu:( en það var mjög gaman. En svo afrekaði ég það líka að detta af baki á fimmtudaginn:$ það var nú samt aðalega mér að kenna - er allgjör lúði:^) meiddi mig í hendinni og hélt væri handleggsbrotin og fór á slysó og lét taka mynd af mér en júkkett ekkert brotið en  bara rosabólgin og er að vera skemmtilega blá/fjólublá, smart ég veit.

Óli var að koma heim með pissssu jamm ætla að fara að borða


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 20:49:38 / bylgjan

leti fyllerí

síses hva mar er latur eftir helgin, nenni ekki neinu. Ég og Óli fórum á Krókinn áðan til að fá okkur pizzu og eftir matinn var eg alveg til í að leggja á borðið. En helgin er búin að vera mjög góð, á fös var farið á reiðhalla sýningu í Svaðastaðahöllinni, hún var ekki neitt til að hróða húrra yfir og plús það að við fengum sæti lengst út í horni, sáum hestana þegar þeiir komum inn og fóru út. En við skemmtum okkur bara sjálf í góðra vina hópi, vorum öflugt klapp- og kall lið fyrir þá sem vildu. svo var bara dottið í það8) og það allsvaðalega. Við fengum góða gesti í heimsókn til okkar og gistu hjá okkur um helgina, Þórdís og co kom og sváfu í öllum hornum. Laugard.kvöld áður en var farið  á ball þá kom fólk og hertók íbúðina okkar og þar var alveg brjáluð gítarstemning þar sem "kem heim í Búðardal" var mest spilað. Fullt af fullu fólki sem sullaði en það var seinni tímavandamál. Svo var bar haldið á ball. Í morgun þegar ég vaknaði þá var Þórdís komin á fætur og búin að taka til og var að myndast við það að fara að skúra - gott að fá sonna gesti í heimsókn:haha: þetta verður sett sem skilyrði með gistingu:klikk: hehe

er löt, ætla að fara horfa á hesta 


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 21:54:29 / bylgjan

frh

jæja er ekki komin tími á smá skrif, dagarnir eru búnir að vera nokkuð tjillaðir, ríða á tryppum og járna, er búin með annað tryppið, þægu merina mína, helv.. hann Blesi var frekar leiðinlegur þegar ég var að járna hann að framan, hann fór að vesenast þegar ég fór að negla fjaðrirnar í hann, hann prjónaði upp og ein fjöðrin stóð upp í loftið og hún stakst upp í kálfan á mér - ógó vont:( fékk sár.

Svo er ég að fara skrifa heimildaritgerð og mér finnst það leiðinlegt, finnst það alveg óþarfi að skrifa ritgerð þegar við erum að læra að vera temjarar -ekki rithöfundar:| ég ætti að vera núna að læra en nei, við Óli og Sören erum að horfa á DVD, erum að horfa á Ástrík og Steinrík - myndina með íslensku, ógó gaman, Óla finnst þetta hrikalega fyndin mynd :P hann er töffari:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 20:59:31 / bylgjan

tamingar og járningar

Jæja lífið er yndislegt. við erum byrjuð í járningum og erum að járna lifandi hesta - skólahesta. Byrjaði að járna á þriðjudaginn og er búin að járna hvern dag síðan, ooooog ég er með harðsperrur fyrir allan peninginn. Á miðvikudaginn gat ég valla farið fram úr, þurfti að velta mér fram úr. Úff svo ætlaði ég ekki að geta járnað aftur sama dag, fann ekki fyrir löppunum á mér eftir, Er enn með hassssperrruurr :( Er að vera nokkuð klár þó ég segi sjálf frá:P Járnaði meir að segja þæga tryppið mitt í dag, hún var ekki neitt voða þæg fyrst var alltaf að kippa löppunum af mér, var að verða alveg tjúll á henni, en svo stóð hún alveg kjurr, ofsa dúleg:D

Svo erum við búin að fá úthlutað tryppum, ég fékk rauðblesóttan hest frá Skáney undan Sólon frá Skáney og svo meri frá Dalvík undan Adam frá Ásmundarstöðum og undan sömu meri og Dynjandi frá Dalvík fyrir þá sem vita hver hann er. Þetta er voða gaman, þau eru mjög stillt og hrekkja ekki neitt. Það er hingað til enginn búinn að hrekkja eitthvað að ráði fyrr en í dag - þó eru við búin að ríða á þeim og allt en í dag tóku nokkuð upp á því að hrekkja og nokkur allsvaðalega:| Held að enginn hafi dottið og slasað sig. en það er víst í gangi veðmál um að hver sem dettur af baki fyrst þurfi að splæsa bjór á bekkinn:D Krossum fingur

er farin að reyna að standa upp.


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 21:07:40 / bylgjan

hammmó ammó

Lífið byrjar hægt hér á Hólum - voða lítið að gerast, vorum bara að kynnast tryppunum og læra hvernig á að temja þau. Þetta eru allskonar nýjar aðferðir sem ég hef aldrei notað áður, við eigum að vefja þeim inn í spotta og hoppa og skoppa í kringum þau. Ég fékk einn mjög svo ekki skemmtilegan á föst sem steig svona hressilega á ristina á mér að ég er enn aum, djö.. trunta :evil: Svo á morgun fáum við úthlutuð tryppi sem við eigum svo að temja í vetur, í dag fórum við á bak á mögulegum skjólstæðingum okkur, það var voða gaman, aðeins að tryppast, allir að fylgjast með og ræða ættir og geðslag8) við erum svo töff á Hólum.

Svo fyrir þá sem gleymdu þá varð ég gömul á lau, varð 23 ára gömul, ég fæddist nákvæmleg laugardaginn 15. sept 1984 finnst ég vera só óld:$

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 20:00:00 / bylgjan

mætt aftur

heil og sæl er mætt aftur norður, með allt mitt hafurtask og Óla, sem er núna sokkinn í pleisteisjon sem við keyptum okkur - rífst og skammast í því :) Litli rauður hefur aldrei verið jafn fullur, en við komum öllu draslinu fyrir. Ekkert smá gott að vera komin norður "heim" mjög gott. Erum líka með prýðis nágranna - Sören er við hliðina á okkur og Silli bróðir Óla er fyrir ofan ásamt kærustunni sinni henni Mörtu. En það er ekkert ódýrt að fá þann heiður að nema við þennan virta háskóla. Þurftum til dæmis að borga 20 þús:!:8|í tryggingagjald fyrir lykilinn, og svo ef við hefðum ekki komið á opnunartíma skrifstofunnar, þe eftir 5 þá hefði þurft að ræsa út kelluna sem sér um húsnæðið sem bæþe vei býr aðeins ofar í götunni og það kostar litlar 3500 kr 8| allstaðar plokka þeir peninga.

ætlaði bara láta vita af mér eftir langt og gott sumarfrí

túttítútt


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 23:35:36 / bylgjan

betra seint en aldrei

jæja ætli mar verði ekki að henda inn hér nokkrum orðum - það er orðið svo langt síðan. Ég sýndi Hnotu í kynbótadóm nuna í júni og það gekk alveg glimrandi vel - fékk 9,5 fyrir tölt, brokk, stökk, viljaoggeð og fegurð í reið, endaði með 8,80 fyrir hæfileika þannig að við erum nokkuð sátt8) annars er það bara vinna vinna og ríða út þess á milli. núna erum við að fara á íslandsmót á þri en það er haldið alveg hinum meginn á landinu en Óli minn kemst ekki fyrr en a föst með flugi rétt nær 100 m skeiðinu hjá mer.... þetta er eikkað svo asnalegt lyklaborð sem ég er að nota - stafirnir ekki á réttum stað-- segjum þetta gott í bili

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 21:52:25 / bylgjan

klíningleidís

ég og Hnota eftir Hólaskóla - Íþróttamót Andvara 2007, Tölt úrslit

en núna erum við Óli búin að þrífa, búið að vera rosa stuð hjá okkur - erum að spá í að hætta þessu hestaveseni og fara bara að gera okkur út sem hreingerningardömur 8) Núna erum við bara að bíða eftir að kellingin taki út íbúðia á morgun og gefi okkur verðlaun fyrir best þrifnu íbúðina og svo er það útskriftin á morgun - og svo bruna beint í bæinnn jéhú :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 17:51:07 / bylgjan

jesss búin!!!!!

 

jess skólinn búinn - allavega búin í prófum. Það er bara eftir að þrífa og taka til og fara í útskriftina. Það verður snilld að komast í bæinn og þurfa ekki að gera allt á 2 dögum eins og mar er búin að vera að gera í allan vetur. Bara tjilla með Óla mínum sem við höfum aldrei gert í bænum.

Skeifudagurinn gekk alveg glymrandi vel. Ég vann gæðingafimina, var 3 í skeifunni og fékk ásetu og reiðmennskuverðlaun FT með 10,00 í einkun - hver er best 8)

En hvað er málið með þetta mæspeis, ég er búin að sjá að það eru ALLIR á þessu svo ég bara ooo ókei ég prófa líka en ég skildi bara ekki neitt í þessu og þetta fór allt í klessu - greinilega ekki iddjodd prúf fyrir fólk eins og mig:S en ég ætla að fara að halda áfram að þrífa ofninn með eikkverju baneituruðu stöffi

túllílú

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 23:15:17 / bylgjan

skeifa smeifa

 

jæja það er nú farið að sjá fyrir endan á þessu öllu saman. Skeifukeppnin er á morgun og lokaprófið með Hnotu var í gær og komst ég í topp fimm - jei8) það eru bara stelpur sem eru í topp 5, strákarnir eru nú ekki alveg sáttir með það og hóta öllu illu að halda bara sína eigin hólasveinakeppni á sama tíma. En við erum ekki búin að fá einkunina út úr þessu, ég veit bara að ég var í topp 5 en veit ekki röðina. Svo er sonna úrslitakeppni á morgun og þá keppum við þessar 5 aftur og það verða áhorfendur og alles. ma og pa koma í fyrramálið og er pabbi búinn að heimta hádegismat þegar hann kemur. Svo eru síðustu prófin í næstu viku og þá er ekkert eftir nema að þrífa íbúðina....  seif þe best for last :lol: sjíbbí  ..... myndirnar frá árshátíðinni eru að læðast inn svona hægt og rólega... læt vita þegar þær eru allar komnar... en er að farin a sofa .. þarf að vakna snemma til að þrífa reiðhöllina.


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 17:15:23 / bylgjan

sumur eru bara sumir

 

heibabbalúla hísmæ beibí...

jamm er mætt enn og aftur. Við erum flutt í nýja hesthúsið - ekki ég og Óli heldur ég og Hnota. Það er svakalega stórt, mar þarf að fá sér hlaupahjól til að fara á milli staða. Hnakkaskápurinn er alveg í hinum endanum (eða næstum því8) ) og Hnota í hinum, en hún er voða sátt og ánægð í svítunni sinn, það er alveg fullt af spæni og nóg pláss fyrir prímadonnuna:haha: Allt annað en hitt fjósið.

Í kvöld og á morgun þá erum við 16 nem að fara taka þátt í sýningu sem heitir Tekið til Kostana á króknum, við erum búin að vera æfa síðustu vikur, voða flott og æðislegt hjá okkur - er með Hnotu í þessu.

Svo eru  bara ca. 4-5 vikur eftir af skólanum svo er ég komin norður , jéhú get ekki beðið, langar suður og fara ríða út og vinnaa!!!! fá penge, sem er aldrei slæmt að fá.

ætla að fara horfa á Will and Grace..:P 


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti